Ágæti félagi í ÆÍ.

Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands fyrir árið 2024 verður haldinn laugardaginn 28. september í veiðihúsinu Vökuholti Laxamýri í Aðaldal og hefst kl. 10:00.  Laxamýri er ca 8 km frá Húsavík.  Kort.  Það er nóg af gistingu í nágrenninu.  Bæði á Húsavík og svo er líka hægt að fá bændagistingu.

Meðfylgjandi er dagskrá aðalfundarins.  Félagar eru beðnir að tilkynna þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 24. september annað hvort á info@icelandeider.is eða í síma 6996571 Margrét.

Greiðslubeiðni vegna árgjalda 2024 er komin í heimabanka.  Þeir félagar sem hafa ekki heimabanka er bent á að fara til gjaldkera í sínum viðskiptabanka og láta sækja greiðsluseðilinn í bankanum.

Stjórnin hlakka til að sjá sem flesta félaga á aðalfundinum á Laxamýri

F.h. stjórnar
Margrét Rögnvaldsdóttir formaður