Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands 9. nóvember 2013
Aðalfundarboð
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands árið 2013 verður haldinn laugardaginn 9. nóvember 2013 í Kötlu, 2. hæð, Radisson SAS blu – Hótel Sögu. Fundurinn hefst kl. 11.00.
Þeir félagar sem enn eiga eftir að greiða árgjald eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu en greiðslubeiðni er í heimabanka. Ekki verður tekið við greiðslu félagsgjalda á fundinum eftir að hann hefst.
Minnt er á að aðalfundur Samtaka selabænda hefst kl. 16.30.
Dagskrá fundarins
11.00 -12.30 Fundarsetning. Tilnefning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar: Guðrún Gauksdóttir. Skýrsla hlunnindaráðgjafa BÍ: Sigríður Ólafsdóttir. Reikningar félagsins: Guðni Þór Ólafsson.
Fyrirspurnir og umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Ávörp gesta
12.30 -13.00 Léttur hádegisverður
13.00 -16.00 Erindi. Fréttir og tillögur frá deildum.
Sölu- og markaðsmál. Kosningar. Tillögur, Fundarslit.
16.00 Kaffiveitingar