Skráning nauðsynlegt á aðalfund ÆÍ!
Ágæti félagsmaður.
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands verður haldinn á laugardaginn 6. nóvember á Nauthól. Tilkynna þarf þátttöku á info@icelandeider.is. Þeir sem ætla að mæta vinsamlega látið vita í síðasta lagi á morgun föstudaginn 5 nóvember fyrir kl. 16. Það á einnig við þá sem ætla að mæta á netfund. Þeir þurfa að tilkynna sig á fundinn og senda netfang á info@icelandeider.is. Þá muni þeir fá sent í tölvupósti link á fundinn. Athugið þeir sem mæta á netfund geta ekki greitt atkvæði.
Vinsamlega mætið tímanlega á Nauthól til að fá afhent kjörgögn. Stjórnin mælist til að fólk sé með grímu.
4. nóvember 2021
Stjórnin