Aðalfundur ÆÍ 2026

Ágæti félagi í ÆÍ.

Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands 2026 verður haldinn laugardaginn 17. október á Löngumýri, Skagafirði og hefst kl. 10:00.

Meðfylgjandi er dagskrá aðalfundarins. Við verðum bæði með staðfund og fjarfund.  Félagar eru beðnir að tilkynna þátttöku í síðasta lagi mánudaginn 12.  október annað hvort á info@icelandeider.is eða til Margrétar í síma 6996571.  Þeir félagar sem mæta á fjarfund geta ekki nýtt sér kosningarétt sinn í fjarfundi.  En þeir hafa möguleika á því að veita öðrum sem mæta á staðinn umboð fyrir sína hönd.

Greiðslubeiðni vegna árgjalda 2026 er komin í heimabanka.  Þeir félagar sem hafa ekki heimabanka er bent á að fara til gjaldkera í sínum viðskiptabanka og láta sækja greiðsluseðilinn í bankanum.

Stjórnin hlakkar til að sjá sem flesta félaga á aðalfundi, hvort sem er á staðfundi eða í fjarfundi.

F.h. stjórnar,
Margrét Rögnvaldsdóttir formaður.


Dagskrá aðalfundar ÆÍ laugardaginn 17. október 2026, Löngumýri Skagafirði. 

Kl. 10:00  Fundarsetning.  Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Kl. 10:10  Skýrslur og reikningar.

Kl. 10:40  Kosningar.  Kjósa á formann og  einn í varastjórn.

Kl. 10:50  Markaðs- og sölumál.

Kl. 11:10  Dúnmatið – staðan

Kl. 11:40  Aðgerðaráætlun um útrýmingu minks.  Karl Gauti Hjartarson.

Kl. 12:10  Hádegishlé.

Kl. 13:00  Minkagildrur.  Garðar Páll Jónsson og Magnús Hinriksson Bjarmalandi.

Kl. 13:30  Kosningar um tillögur og ályktanir.

Kl. 13:50  Önnur mál

Kl. 13:55  Fundarlok.

Kl. 14:00  Farið verður í skoðunarferð í rútu með leiðsögn heimamanna. Komið m.a. við í Kakalaskála og fræðst um einn mannskæðasta bardaga Íslandssögunnar og smakkað á mat úr héraði. https://www.kakalaskali.is/

                 

Kl. 20:00  Sameiginlegur kvöldverður á Löngumýri, Skagafirði.

Lambalæri að hætti hússins.  Í desert kaffi og kaka.  Það er ekki vínsala á staðnum en fólki er velkomið að koma með sitt eigið vín.

Fréttir af deildum.  Spjall og önnur skemmtun.

 

Miðinn í skoðunarferðina og kvöldverðinn kostar kr. 12.900.  Miði bara í skoðunarferð kostar kr. 6.000.  Vinsamlega tilkynnið þátttöku á info@icelandeider.is eða til Margrétar sími 6996571 í síðasta lagi mánudaginn 12. október.