Aðalfundur ÆÍ 2017 dagskrá
Kæru félagsmenn í ÆÍ.
Aðalfundur ÆÍ 2017 verður haldinn í félagsheimilinu Hnitbjörgum, Raufarhöfn laugardaginn 26. ágúst n.k., sbr. meðfylgjandi dagskrá og upplýsingar. Óskað er eftir því að þeir sem ætla að leggja fram tillögur á aðalfundi sendi þær á netfangið info@icelandeider.is ekki síðar en viku fyrir fundinn. Athygli er vakin á því að aðalfundur Samtaka selabænda verður haldinn kl. 8.30.
Fundarboðið er í þetta skipti auk rafrænnar útsendingar á netföng sent öllum félagsmönnum með almennum pósti þar sem kvartanir hafa borist frá nokkrum félagsmönnum um að hafa ekki fengið póst frá félaginu á uppgefin netföng. Mikilvægt er að breyta stillingum í póstþjóni til að tryggja að póstur frá ÆÍ lendi ekki í hólfi fyrir ruslpóst eða auglýsingar.
Greiðslubeiðni vegna árgjalda hefur verið send í heimabanka félagsmanna. Í samræmi við óskir aðalfundar er beiðnin ekki meðal valkvæðra greiðslna. Ekki verður tekið við greiðslu félagsgjalda á fundinum eftir að hann hefst.
Félagsmenn eru hvattir til að senda upplýsingar um ný eða breytt heimilisföng eða netföng á info@icelandeider.is
Heimasíða félagsins er www.icelandeider.is
Facebook – Æðarræktarfélag Íslands
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands
Félagsheimilinu Hnitbjörgum Raufarhöfn
Laugardagur 26. ágúst 2017
Kl. 8:30 Aðalfundur Samtaka selabænda
Kl. 10:00 – 11:30
Fundarsetning: Kosning fundastjóra og fundarritara
Skýrslur og reikningar:
Skýrsla stjórnar: Guðrún Gauksdóttir
Reikningar: Sæmundur Sæmundsson
Kosningar
Tillögur
Önnur mál
11:30 – 12:30
Kynning á breytingum félagsgjalda til Bændasamtaka Íslands
Hópavinna:
- Hvert er hlutverk Æðarræktarfélags Íslands
- Hver eru verkefni Æðarræktarfélags Íslands
- Hver er framtíðasýn félagsmanna fyrir Æðarræktarfélag Íslands
Kl. 12:30 – 13:00
Hádegishlé
Kl. 13:00
Samantekt frá hópum
Kl. 13:30
Skoðunarferð um Sléttu og Langanes undir leiðsögn heimamanna
Kl. 20:00
Kvöldverður í Hnitbjörg félagsheimilinu á Raufarhöfn
Sunnudagur 27. ágúst 2017
Kl. 10:00-12:00
Þeir sem hafa áhuga á geta mætt við Félagsheimilið á eigin bifreið. Val stendur á milli að ganga á Rauðanúpinn, ganga á Hraunhafnartanga, heimsækja Skinnlón eða Grjótnes. Heimamenn verða með leiðsögn og fræðslu á þessum stöðum.
Þátttaka og kostnaður
Kostnaður: Að venju er fundurinn í boði Æðarræktarfélags Íslands og hádegisverðurinn í lok fundar. Rútan í skoðunarferðinni kostar kr. 1.000 en leiðsög er í boði heimamanna. Í ferðinni verður hressing í boðið ÆÍ. Kvöldverðurinn í Félagsheimilinu kostar kr. 6.000.
Gisting: Hótel Norðurljós, Hreiðrið, Sólsetur og svo er mjög gott tjaldstæði á Raufarhöfn. Á Kópaskeri er Farfuglaheimilið og Víðihóll.