Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands verður haldinn í Reykjavík 7. nóvember 2015 kl. 11 í Heklu Radison Blu Hótel Sögu.
Þeir félagar sem enn eiga eftir að greiða árgjald eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu en greiðslubeiðni er í heimabanka (ath. að greiðsluseðillinn gæti birst með valkvæðum greiðslum). Ekki verður tekið við greiðslu félagsgjalda á fundinum eftir að hann hefst.
Fyrirspurnir berist á netfangið info@icelandeider.is. Félagsmenn eru hvattir til að senda inn ný eða breytt netföng.
Dagskrá aðalfundar 2015
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands haldinn í Heklu, Hótel Sögu 7. nóvember 2015 kl. 11.00
Dagskrá
Kl. 11:00‐12:30
Fundarsetning. Tilnefning fundarstjóra og fundarritara
Skýrslur: Skýrsla stjórnar; Guðrún Gauksdóttir
Skýrsla hlunnindaráðgjafa; Sigríður Ólafsdóttir;
Reikningar félagsins; Björn Ingi Knútsson
Fyrirspurnir og umræður
Ávörp gesta
Kl. 12:30 – 13.00 Léttur hádegisverður
Kl. 13:00‐16:00
Fræðsluerindi frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Snæfellsnesi
Jón EinarJónsson, Árni Ásgeirsson og Aldís Erna Pálsdóttir
Merkingar á æðarfugli á 7 stöðum á sunnanverðum Breiðafirði
Notkun hreiðurmyndavéla í æðarvarpi
Dúnrannsóknir, aðferðir og frumniðurstöður
Fyrirspurnir og umræður
Fréttir og tillögur frá deildum
Sölu- og markaðsmál
Kosningar (tveir stjórnarmenn, varamaður, fulltrúi á Búnaðarþing og varamaður, skoðunarmaður)
Tillögur
Önnur mál
Kl. 16:00 Fundarslit og kaffiveitingar