Ágæti félagsmaður!

Friðlýsing æðarvarps veitir æðarfuglinum þýðingarmikla vernd. Í reglugerð nr. 252/1996 um friðlýsingu æðarvarpa og fl. segir að friðlýst æðarvörp skuli auðkenna með áberandi hætti, þar sem því verði við komið. Í óbyggðum eyjum og hólmum á þetta ekki við.  ÆÍ telur að mikilvægt sé að friðlýst æðarvörp séu merkt með samræmdum hætti og hefur látið útbúa skilti sem heimilt er að nota til að auðkenna friðlýst æðarvörp.

Friðlýsing æðarvarps gildir á tímabilinu frá 15. apríl til og með 14. júlí ár hvert. Friðlýsingin felur það í sér að öll skot eru bönnuð nær friðlýstu æðarvarpi en 2 km, nema brýna nauðsyn beri til. Á sama tíma má eigi án leyfis varpeiganda leggja net í sjó nær friðlýstu æðarvarpi en 250 m frá stórstraumsfjörumáli. Jafnframt felur friðlýsingin í sér að innan friðlýstra svæða er öll óviðkomandi umferð og röskun bönnuð, svo og óþarfa hávaði af völdum manna og véla, nema með leyfi varpeiganda. Friðlýsingu þarf að endurnýja á 10 ára fresti.

Nánari leiðbeiningar um friðlýsingu varpa eru á www.icelandeider.is og https://www.syslumenn.is/thjonusta/leyfi-og-loggildingar/fridlysing-aedarvarpa/ (á síðunni er hlekkur á umsóknareyðublað og upplýsingar um friðlýst vörp).

Félagar í ÆÍ, sem jafnframt eru forráðamenn friðlýstra æðarvarpa, geta gegn greiðslu fengið eitt eða fleiri skilti til að merkja vörp sín og er heiti jarðarinnar, þar sem hið friðlýsta varp er staðsett, skráð á skiltið. Stjórn ÆÍ staðfestir að um friðlýst æðarvarp sé að ræða skv. auglýsingu sýslumanns. Heimilt er að nota skiltin á meðan friðlýsing er í gildi.

Skiltin eru framleidd í tveimur stærðum.

  • Skilti 30×40 cm
  • Skilti 45×60 cm
  • Grunngjald: (Eitt grunngjald þarf alltaf að greiða, óháð því hvað mörg skilti eru pöntun. Grunngjald reiknast einu sinni)
  • 5.500 kr./6.820 kr. m.vsk.
  • 7.000 kr./8.660 kr. m.vsk.
  • 7.900 kr./9.796 kr. m.vsk.

Skiltið sem er áprentuð filma límd á 3-5 mm álplötu, kemur án festinga en hægt er að skrúfa það beint í staura/uppistöður með sjálfborandi skrúfum. Afgreiðslutími skilta er 3-4 dagar frá því að pöntun er gerð.

Með kveðju,

Stjórn ÆÍ

Skiltapöntun

2 + 1 = ?